|
Í faðmi fjallanna – Klængshóll í Skíðadal
Á Klængshóli sem er fremsti bær í austanverðum Skíðadal á Tröllaskaga er ferðaþjónusta í faðmi fjallanna. Boðið er upp á gönguferðir með leiðsögn í fögru og hrikalegu umhverfi Tröllaskagans s.s. lækningajurtaferðir, eyðibýlagöngu og ýmis námskeið tengd náttúru og heilsu.
Anna Dóra Hermannsdóttir yogakennari og leiðsögumaður og Örn Arngrímsson höfuðbeina- og spjaldhryggjarþerapisti taka á móti og sjá um gesti Klængshóls.
Þau leiða ferðalanginn um dalinn og einnig í hinar ýmsu Yndisferðir um náttúru Íslands. Falin fjallavötn, undurfagrir fossar, gil og gljúfur, leiðir huldra vætta, hengidalir og jöklar, grös, ljóð og sögur eru perlurnar sem tengja allar þessar ferðir.
Í Yndisferðum er notuð náttúrutúlkun - Environmental Interpretation - sem er ákveðið form fræðslu sem þróaðist í fyrstu þjóðgörðum veraldar. Náttúrutúlkun leiðir til dýpri skilnings á gildi náttúrunnar og mikilvægi þess að vernda hana. Anna Dóra hefur starfað sem landvörður og leiðsögumaður um árabil og fléttar náttúrutúlkun inn í allar ferðir ásamt yoga og hugleiðslu.


Prentvæn
útgáfa
|